Foreldrakvöld foreldra/aðstandenda nýnema FB verður þriðjudaginn 11. október kl. 19:30-21:30 í matsal nemenda á móti Breiðholtslaug

Dagskrá

  1. Aðalfundur foreldrafélags FB – Ný stjórn kynnt
  2. Anna Steinsen – Jákvæð samskipti
  3. Léttar veitingar og spjall
  4. Tónlistaratriði

Anna Steinsen er eigandi Kvan og er ein af vinsælustu fyrirlesurum landsins. Hún er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði, hefur síðastliðin 16 ár sérhæft sig í þjálfun á námskeiðum fyrir ungt fólk og unnið til fjölda verðlauna sem þjálfari á alþjóðavettvangi. Anna er meðal annars stjórnenda- og heilsumarkþjálfi og þjálfari á námskeiðum. Hún starfar sem fyrirlesari og flytur að jafnaði 150-200 fyrirlestra á hverju ári. Þar á undan starfaði hún í félagsmiðstöð sem tómstundaleiðbeinandi. Hún hefur auk þess gefið út tvær barnabækur.

Í dag stundar Anna mastersnám í samskiptum og forvörnum hjá HÍ.

Hlökkum til að sjá sem flesta!