FB-ingurinn Kjartan Óli Ágústsson hlaut nýverið styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands. Kjartan Óli útskrifaðist af tölvubraut í vor og var hæstur á stúdentsprófi.  Styrkurinn er veittur nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs. Á myndinni má sjá Kjartan ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands.  Við óskum Kjartani innilega til hamingju með styrkinn og erum stolt af honum.