Monika Jóhanna Karlsdóttir útskrifaðist í vor af myndlistarbraut FB. Hún hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við athöfn í Hátíðasal skólans þann 31. ágúst síðast liðinn. Hér er Monika ásamt rektor HÍ við athöfnina. Monika hefur hafið nám í listfræði við HÍ. Við óskum henni innilega til hamingju með styrkinn!   Mynd: Kristinn Ingvarsson