Í áfanganum FABLAB 1 kynnast nemendur möguleikum stafrænnar tækni og frjáls hugbúnaðar í Fab Lab smiðju.

Nemendur fá þekkingu á áhöldum smiðjunnar í gegnum verkefnavinnu og notast við tækni 21. aldarinnar með stafrænum framleiðsluaðferðum. Kennt er á frí tvívíddar og þrívíddar teikniforrit sem henta fyrir hönnun og auka nýsköpun. Verkefni eru framkvæmd í tölvustýrðum laserskera, vínylskera, og þrívíddar prentara. Nemandinn öðlast færni til að virkja sköpunarkraft sinn og framkvæma í Fab Lab smiðju í mismunandi efni eins og tré, plexí, gler, vínylfilmu og pappír. Kennt er á miðvikudögum frá 18:00-20:10. Kennari er Soffía Margrét Magnúsdóttir.