Í áfanganum er lögð áhersla á fjölbreytilega texta, t.d. greinar úr fagbókum og tíma­ritum, rannsóknaskýrslur og bókmenntaverk. Áframhaldandi kynning á menningu ensku­mælandi landa. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti, geti rökstutt skoðanir sínar og tileinkað sér nýjan orðaforða. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, m.a. við öflun upplýsinga á bóka­söfnum, Netinu og í margmiðlunarefni