Einkunnir birtast nemendum í INNU í síðasta lagi mánudaginn 14. desember kl. 12:00. Umsjónarkennarar verða í rafrænu sambandi við sína nemendur um einkunnir, breytingar á vali og staðfestingu vals. Innan verður opin til 17. desember. Kennarar svara rafrænt fyrirspurnum nemenda vegna prófa og verkefna. Dagskólanemendur sækja verkefni sín t.d. í list- og verknámi mánudaginn 14. desember kl. 15:00-16:00. Kennarar kvöldskóla svara rafrænt fyrirspurnum nemenda vegna prófa og verkefna og verknámsnemendur sækja verkefni sín mánudaginn 14. desember kl. 16:00-17:00. Útskriftin verður 18. desember í matsal skólans. Sjá nánar í tölvupósti til útskriftarnema.