Í dag kvöddu útskriftarnemar kennara og starfsfólk skólans og færðu þeim blóm. Dagurinn hófst með morgunverðahlaðborði í Skuggaheimum og fóru nemendur því næst í ratleik um borgina. Formlegri dagskrá lýkur með kvöldverði ásamt kennurum og stjórnendum skólans. Við óskum útskriftarnemum góðs gengis í prófunum og þökkum þeim samfylgdina undafarin ár.