Lið FB Hringaná komst áfram í Boxinu framkvæmdakeppni framhaldsskólanna, en aðeins átta lið komust áfram.  Þann 31. október fór fram undankeppni og fengu nemendur að þessu sinni tvær þrautir sem þeir áttu að leysa. Í þeirri fyrri áttu nemendur að leysa ákveðið mynstur, en í þeirri seinni áttu þeir að byggja úr spilum. Á myndinni má sjá  keppendur okkar þau Önnu Maríu Birgisdóttur, Daníel Orrason, Marclester Ubaldo, Júlíönu Lind Guðlaugsdóttur og Eirík Jóhannsson ásamt spilaborginni þeirra. Við óskum þeim innilega til hamingju með að komast áfram og óskum þeim áframhaldandi velgengni í lokakeppninni.