Sigurvergari í samkeppni myndlistarbrautar FB um besta vegglistaverkið á húsgaflinn við Vesturberg 70-74 er Monika Jóhanna Karlsdóttir nemandi á myndlistarbraut með myndina Fuglaflæði. Vinningsféð er 50.000kr sem verður afhent við útskrift í Hörpu í maí.  Borgarráð Reykjavíkurborgar veitti FB 200.000kr styrk til verkefnisins en auk þess styrkir hússjóður Vesturbergs 70-74 uppsetninguna sem og FB og Litaland. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu hæfileikaríku nemendum sem tóku þátt og óskum Moniku Jóhönnu innilega til hamingju með glæsilegt listaverk!