Áfangalýsing

Lögð er áhersla á tengingu rafbúnaðar við ytra umhverfi, hvernig skynjarar tengjast við og gefa upp­lýsingar til rafbúnaðar og hvernig niðurstöðum úrvinnslu eins og t.d. mögnun er skilað út aftur. Nemendur vinna ýmis verkefni, svo sem að smíða prentplötu, bora og lóða íhluti, mæla og prófa virkni þeirra og notagildi. Enn fremur smíða þeir smærri rafeindatæki, svo sem dimmi, ljósnema og hreyfil­stýringar. Gerðar eru mælingar á verkefnum með sveiflusjá. Þá er um að ræða flóknari verkefni þar sem nemendur gera áætlanir, teikna, reikna, herma, smíða, tengja og prófa búnað að eigin vali, hvort sem um er að ræða rafeindatæki eða annað með lág- og smáspennuívafi. Lögð er áhersla á sjálfstæði og áræði nemenda í hugsun, verkefnavali og vinnubrögðum.

Áfangamarkmið

Nemandi

  • þekki ýmsar gerðir skynjara, línulega sem ólínulega
  • viti hvernig mögnun fer fram
  • geti unnið með yfirborðslóðaða íhluti (SMD)
  • geti smíðað rafeindatæki af ýmsum gerðum (lokaverkefni)
  • geti notað hermiforrit til að líkja eftir ýmsum rásum
  • geti gert verk- og efnisáætlun fyrir minni rásahönnun
  • geti prófað og mælt rásir
  • kunni skil á mælingum með sveiflusjá
  • þekki uppbyggingu hátalara og hljóðnema
  • þekki aðferðir til að fanga efni (mynd, hljóð, lýsing, grafík)

Efnisatriði

Stafrænar rásir, viðvörunarkerfi, jákvæð og neikvæð afturverkun, reglun, fjarstýringar. Nálgunar- og Hall-skynjarar. Sínusbylgjugjafar, tíðnisíur og lágtíðnimagnarar, hljóðnemar, ljósastýringar, hreyfi­skynjarar, reykskynjarar, hitaskynjarar, þrýstiskynjarar, segulskynjarar, hreyfilstýringar, spennu­gjafar, lágtíðnimagnarar, og viðtæki. Yfirborðslóðun (SMD). Þjálfun í notkun mælitækja og verkfæra.

Námsmat

Verkefnavinna og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.