Áfangalýsingar

Í áfanganum læra nemendur grunnatriði í virkni og notkun tölvustýrðra trésmíðavéla með áherslu á sambandið milli tölvuteikninga (CAD), færsluskipana (CAM) og framleiðslu (CNC). Fjallað er um helstu hugtök sem tengjast notkun tölva í framleiðsluumhverfi, stafræna stýringu og forritun CNC-véla. Áherslan er á uppbyggingu CNC-forrita og hvernig hægt er að nota CAM-hugbúnað til að líkja eftir vinnslu á CNC-vél. Nemendur öðlast einnig þekkingu í öryggismálum varðandi umgengni við tölvu­stýrðar vélar. Áfanginn er bæði ætlaður verðandi húsasmiðum og húsgagnasmiðum og er að mestu bóklegur þar sem nemendur kynnast algengustu viðmótum tölvustýrðra trésmíðavéla hérlendis. Farið er í heimsókn í fyrirtæki og tölvustýrðar trésmíðavélar skoðaðar.