Í áfanganum er farið í fjölbreytileika mannlegrar hegðunar og tilfinninga. Nemendur auka skilning sinn á mannlegum samskiptum og öðlast aukinn skilning á starfi sínu á snyrtistofu. Lögð er áhersla á að nemendur skilji hve fagmannleg framkoma og rétt líkamsbeiting er mikilvæg. Þeir læra grundvallarreglur um persónulegt hreinlæti vegna nándar í þjónustustarfi, læra að þekkja æskilega og óæskilega þætti í fari fagmanns við þjónustustörf. Þeir þekkja mun á góðri og slæmri líkamsstöðu, æskileg og óæskileg umræðuefni við viðskiptavin og grundvallarlögmál almennrar siðfræði.