Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í lestri og gerð byggingateikninga en nú með áherslu á timburhús og þakvirki. Haldið er áfram umfjöllun um almenna bygginga-uppdrætti en samhliða koma einnig burðarvirkisuppdrættir þar sem m.a. er komið inn á ýmiss konar álag á byggingar og brunahönnun. Fjallað er um algengustu útfærslur burðarvirkja úr tré, byggingatæknilegar lausnir, hönnunarforsendur, verklýsingar með tilliti til m.a. efniskrafna og einangrunar. Nemendur kynnast mátkerfi fyrir byggingar-iðnaðinn og fá þjálfun í gerð efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli hönnunargagna. Áfanginn er ætlaður húsasmiðum og byggist á verkefnavinnu með leiðsögn kennara