Áfangalýsing

Í áfanganum fer fram kynning á loftstýringum, helstu loftmeðhöndlunartækjum og virkni þeirra. Fjallað er um nokkrar gerðir af loftstýrieiningum, svo sem loka og strokka og helstu tákn og tengi­myndir sem notaðar eru í loftstýringum. Nemendur þjálfast í teikningum og tengingum á einföldum loft­stýringum. Haldið er áfram með segulliðastýringar þar sem frá var horfið í fyrri áfanga en nú með tengingum við loftstýringar. Nemendur hanna og tengja loftstýribúnað sem stjórnað er af segulliða­stýringum. Eins og í fyrri áföngum er áhersla lögð á verkefnavinnu og verklegar æfingar sem felast í að brjóta efni áfangans til mergjar, tengja, prófa, mæla og taka saman niðurstöður.

Áfangamarkmið

Nemandi

  • kynnist helstu kostum og göllum við loftstýringar
  • þekki virkni og notkun á loftpressum, loftsíum, smurtækjum, lofthylkjum og öryggislokum
  • þekki virkni og notkun á einvirkum og tvívirkum strokk
  • þekki virkni og notkun á 2/2-, 3/2- og 5/2-lokum sem stýrt er handvirkt, með rafmagni, með lofti og vélrænt
  • þekki virkni og notkun á deyfistefnu-, tvíþrýsti- og einstefnulokum
  • þekki og geti teiknað virkni- og tengimyndir og tengt eftir teikningum
  • þekki til bilanaleitar í loftstýringum
  • þekki og geti tengt segulliða- og loftstýringar saman
  • þekki og geti skilið upplýsingar af skiltum rafmótora

Efnisatriði

Loftmeðhöndlunartæki: loftpressur, loftsíur, smurtæki, lofthylki, og öryggislokar. Strokkar, afl- og stýriloftlokar. Segulliðar, þrýstirofar og annar búnaður úr áföngum STR 102 og STR 202. Teikniforrit fyrir stýrirásarteikningar, stýri- og kraftrásir.

Námsmat

Verkefnavinna og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.