Í áfanganum er fjallað um framkvæmdir við undirstöður og burðarvirki steinsteyptra bygginga og mannvirkja. Byrjað er á að gera grein fyrir afsetningu húsa og mælingum á byggingastað, því næst er fjallað um mótasmíði einstakra byggingarhluta, einangrun botnplötu, niðurlögn steinsteypu, gerð og smíði verkpalla eftir því sem bygging rís. Kennslan er bæði bókleg og verkleg og lögð er áhersla á samhengi námsþátta. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi fengið nokkra innsýn í smíði steypumóta og verkpalla í vinnustaðanámi áður en þeir fara í áfangann. Áfanginn er ætlaður húsasmiðum og fer kennslan þannig fram að tvinnað er saman bóklegum og verklegum þáttum námsins með fyrirlestrum og verkefnavinnu.