Í áfanganum er lokið við að fara yfir öll helstu grundvallaratriði spænskrar málfræði. Áhersla er á notkun viðtengingarháttar nútíðar og þátíðar og skildagatíðar. Orðasambönd, sem geta tekið með sér viðtengingarhátt og/eða framsöguhátt, eru tekin fyrir. Nemendur öðlast færni í réttri notkun þátíða. Stutt skáldsaga eða smásögur eru lesnar og verkefni unnin upp úr þeim. Munnleg tjáning er mikið æfð og reynt að festa í sessi virkan orðaforða. Nemendur kynna sér fjölbreyttan menningarheim hinna spænskumælandi þjóða og bera saman við sinn eigin. Nemendur vinna margvísleg þemaverkefni saman og kynna fyrir samnemendum sínum. Upplestur texta er æfður. Áhersla er lögð á ríkan orðaforða og nokkuð rétta málfræði. Framburður er þjálfaður.