Í áfanganum er stefnt að þjálfun barna á aldrinum 3-5 ára. Starfið getur verið tengt fjölbreyttri þjálfun í íþróttagrein hjá íþróttafélagi eða starf í íþrótta- og frístundaskóla íþróttafélags eða leikskóla. Nemandinn verður látinn setja upp æfingaáætlun með íþróttakennara/þjálfara og kenna eftir þeirri áætlun. Æfingaáætlunin og kennsla er síðan metin í lok æfingakennslutímabils. Efnisatriði: Æfingaáætlun, tímaseðill, gerð þrautabrauta, þroski og starfsgeta leikskólabarna.