Nám í íslensku á þessari braut tekur eitt ár. Áfanginn ISL1936 er kenndur á haustönn og ISL2936 á vorönn.

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar. Þeir lesi stutta texta, smásögur og blaðagreinar. Nemendur fái þjálfun í fjölbreyttri ritun og tjáningu. Þeir læri undirstöðuhugtök í ljóðgreiningu, málfræði og stafsetningu. Nemendur læri að meta góða mál­notkun og öðlist trú á eigin málhæfni í ræðu og riti. Þeir nemendur sem fá 8,0 í heildareinkunn á haustönn fara í ISL 1026 á vorönn.