Í áfanganum er fjallað um bygginga og mannvirkjagerð með áherslu á verkferli og öryggismál. Nemendur læra um undirbúning og upphaf framkvæmda, hlutverk og ábyrð einstakra fagstétta, skipulag og stjórnun á vinnustað, samstarf og samskipti, áætlanagerð og gæðastýringakerfi. Kennd er skyndihjálp, rétt líkamsbeyting, notkun hlífðarbúnaðar, meðferð hættulegra efna, umgengni við rafnmagn og farið yfir notkun hjálpartækja og búnaðar við mismunandi verk. Að lokum er gerð grein fyrir námsleiðium í  bygginga og mannvirkjagreinum á framhalds og háskólastigi. Kennsla fer aðalega fram með fyrirlestrum og verkefnavinnu en í skyndihjálp er jafnframt lögð áhersla á sýnikennslu og verklegar æfingar.