Í áfanganum er kennd þjálfun barna á aldrinum 10-12 ára. Starfið getur verið
tengt fjölbreyttri þjálfun í íþróttagrein hjá íþróttafélagi eða starf í íþrótta- og frístundaskóla íþróttafélags, hjá ýmsum félagasamtökum eða grunnskóla. Nemandi mun setja upp æfingaáætlun og þjálfa/kenna með íþróttakennara eða þjálfara. Æfingaáætlun og kennsla er metin í lok æfingakennslutímabils. Efnisatriði: Æfingaáætlun, æfingaseðill, stöðvaþjálfun, leikir, þroskaþættir 10-12 ára barna.