Nýnememaball Fjölbrautaskólans í Breiðholti verður haldið í samvinnu við nemendafélög Tækniskólans og Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Ballið verður á Spot í Kópavogi fimmtudaginn 14. október. Húsið opnar kl. 21:00 og lokar kl. 22:00 (ekki er hleypt inn eftir þann tíma) og lýkur ballinu á miðnætti.
Fram koma:

DJ Dóra Júlía

Sprite Zero Klan

Jói P og Króli

Miðasala er hafin og kostar miðinn 3500 kr. Aðeins þeir sem forskráðu sig eiga möguleika á að kaupa miða. Miðasalan er eingöngu fyrir nemendur FB, FÁ og Tækniskólans og fer hún fram í gegnum rafræna miðasölu hér:

https://yess.is/e/nft/nynemaballtskolafbfa/

Nemendafélag FB (NFB) stendur fyrir edrúpotti, þar sem öllum sem koma á ballið verður boðið að blása í áfengis¬mæli til þess að komast í pottinn. Eftir vetrarleyfi verða svo tveir heppnir nemendur dregnir út og fá hvor um sig 25.000 kr. inneign í Kringluna. Rétt eins og á öðrum viðburðum NFB er öll meðferð áfengis og annarra vímugjafa óheimil. Einnig er vert að nefna að á ballinu er ekki leyfilegt að koma inn með tóbak (sígarettur, neftóbak eða munntóbak), nikótínpúða eða rafrettur. Allur óheimill varningur verður gerður upptækur og honum fargað. Allir sem koma á ballið þurfa að framvísa miðanum við hurðina ásamt niðurstöðum úr neikvæðu hraðprófi vegna COVID-19 frá Heilsugæslu (sjálfspróf duga ekki). Hraðprófið má ekki vera eldra en 48 klst gamalt.