Aðgangur að tölvukerfi skólans og Innu
Hver nemandi hefur aðgang að tveimur mismunandi tölvukerfum:
- Innu (https://www.inna.is/Nemendur/). Stundaskrár, námsferill, viðvera og fleiri upplýsingar um nemendur
- Tölvukerfi skólans (m.a. tölvum í kennslustofum, lesstofu og bókasafni)
Kennitala er notuð sem notendanafn að þessum kerfum og hver nemandi fær eitt lykilorð sem gengur
að þeim.
Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára geta fengið aðgang að Innu. Þeir sækja sér lykilorð í gegnum
“gleymt lykilorð” (sjá lýsingu hér að neðan) og fá sent nýtt lykilorð á netfang forráðamanns sem skráð
var í Innu þegar sótt var um skólann. Forráðamaður notar eigin kennitölu.
Ef netfangið er ekki rétt í Innu (gildir bæði um forráðamann og nemandann) skal senda tölvupóst til
fb@fb.is með ósk um að fá netfang skráð í Innu. Tölvupóstinn verður að senda úr netfanginu sem skrá skal sem netfang í Innu.
Gleymt lykilorð
Nemandi sem hefur týnt lykilorði sínu, svo og forrráðamaður nemanda yngri en 18 ára, geta sótt sér lykilorð að Innu. Lykilorðið er sent á netfangið sem skráð er í Innu.
- Smellt er á tengilinn “Gleymt lykilorð” til vinstri á innskráningarsíðu Innu.
- Kennitalan er slegin inn og FB valið.
- Inna sendir sjálfkrafa notendanafn (nota má hvort heldur er notendanafnið eða kennitöluna) og lykilorð í tölvupósti á það netfang sem skráð er í Innu.
- Þetta lykilorð gildir að Innu (https://www.inna.is/Nemendur/)
Breyta lykilorði
- Inna. Þú ferð á vefinn https://www.inna.is/Nemendur/ smellir á orðið „Lykilorð“ sem er undir fyrirsögninni „Stillingar“ til hægri á skjánum. Þú skrifar nýja lykilorðið svo í báða reitina sem birtast.
- Tölvukerfi skólans. Þú kveikir á tölvunni og „loggar þig inn“. Þegar Windows er komið í gang heldur þú niðri lyklunum og sem eru neðst til vinstri á lyklaborðinu og slærð á lykilin sem er neðst til hægri. Á myndinni sem þá kemur upp smellir þú með músinni á hnappinn „Change Password“ og fylgir leiðbeiningum sem birtast á skjánum.

