Skólareglur
Reglur um endurgreiðslu | Reglur um endurgreiðslu |
|
Ef nemandi hættir við námið eftir að hafa greitt skólagjöld, en skólinn ekki byrjaður, þá fær hann endurgreitt að fullu. Ef nemandi skráir sig í áfanga sem fellur svo niður af einhverjum ástæðum, fær nemandi skólagjöldin endurgreidd að fullu. Ef áfangi fellur hins vegar ekki niður, en aðstæður breytast verulega hjá nemendum og þeir geta ekki lokið áfanganum, þá þarf að sækja um endurgreiðslu í síðasta lagi miðvikudaginn 2. júní. Ef skólinn er hafinn og óskað er eftir endurgreiðslu (fyrir 3. júní), þá áskilur skólinn sér þann rétt að taka 25% umsýslugjald. Hjá nemendum sem stunda nám í 0-áföngum er endurgreiðslufrestur til þriðjudagsins 15. júní. |
Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.