Skólareglur | Skólareglur |
|
Skólareglur Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti gilda ákveðnar reglur um samskipti og umgengni og eru nemendur hvattir til þess að kynna sér þessar reglur strax í upphafi og leitast við að fara eftir þeim. Samskipta- og skólareglur í FB eiga það sameiginlegt að byggja á gagnkvæmri virðingu nemenda, kennara og annars starfsfólks. Auk þess er andi þeirra sá að hvetja til góðrar umgengni, tillitssemi og umburðarlyndis. Það er stefna FB að stuðla að því að allir sem þar starfa, nemendur, kennarar og annað starfsfólk, umgangist hver annan af kurteisi og tillitssemi. Nemendur og aðrir sem leita eftir þjónustu skrifstofu, bókasafns og mötuneytis eiga að finna gott og vinsamlegt viðmót. Á sama hátt ætlast skólinn til þess að allir þeir sem leita eftir þjónustu geri það á kurteislegan hátt og sýni skilning og biðlund ef ekki er hægt að sinna erindum þeirra samstundis. |
Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.