Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Nám og kennsla arrow Dreifnám
Dreifnám í Sumarskólanum í FB
Sumarskólinn í FB býður upp á nokkra áfanga í svokölluðu dreifnámi.

Dreifnámið er þannig uppbyggt að nýttir eru allir helstu kostir fjarnáms auk þess sem nemendur hafa aðgang að kennara sínum á ákveðnum tímum.
Nýjasta tækni í vefumsjón og tölvusamskiptum er notuð til að gera námið aðgengilegt. Þannig verða verkefni sett inn á sérstakt námsstjórnunarkerfi sem nemendur fá aðgang að og þangað sækja nemendur verkefnin og skila einnig.

Þá er í kerfinu að finna rafrænan vettvang fyrir umræður og innlegg þar sem nemendur geta skipst á skoðunum undir leiðsögn kennara.

Síðan eru settir inn sérstakir viðtalstímar þar sem nemendur gætu þurft að mæta. Þar verður farið yfir stöðuna í áfanganum, málin rædd og t.d. tekin minni próf.

Boðið er upp á tæplega 40 áfanga í dreifnámi í Sumarskólanum í FB. Þeir áfangar sem boðnir eru þykja henta sérlega vel til dreifnáms. Að auki er möguleiki á að fleiri áfangar bætist við. Þá er einkum átt við áfanga þar sem þátttaka verður ekki nægilega mikil til þess að halda úti hefðbundinni kennslu.

Það er von skólayfirvalda Sumarskólans í FB að nemendur taki þessari nýbreytni vel og nýti þannig saman hefðbundið nám og nýjustu upplýsingatækni. Boðið hefur verið upp á nám af þessu tagi í Sumarskólanum í FB sl. sumur með mjög góðum árangri.
 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.