Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Nám og kennsla arrow Próf og einkunnir
Próf og einkunnir
Prófdagar eru 25., 28. og 29. júní.

Föstudaginn 25. júní og mánudaginn 28. júní verða flest próf, en þriðjudagurinn 29. júní er aðallega hugsaður sem prófdagur fyrir þá sem taka mörg próf eða eru veikir fyrri tvo prófdagana. Nemendur þurfa að láta kennara sína vita með mjög skýrum hætti ef þeir eiga ekki kost á að taka próf á réttum tíma.

Einkunnir verða afhentar og próf sýnd miðvikudaginn 30. júní frá kl. 17:00 til 19:00. Þá mæta kennarar með próf nemenda og þá er hægt að spyrja út í prófin sjálf og einkunnagjöf fyrir áfangann. Ekki er hægt með góðu móti að sýna prófin síðar (t.d. næsta haust).

Einkunnir eru gefnar í heilum tölum. Nái nemandi 5 eða hærra í ákveðnum áfanga hefur hann staðist áfangann. Einkunnin 4 og lægra þýðir að nemandinn hefur ekki staðist þær kröfur sem gerðar eru í áfanganum og telst því fallinn.

Gert er ráð fyrir að nemendur sjái sjálfir um að koma einkunnum sínum í þá skóla sem þeir stunda nám við. Eins bendum við á að áfangastjórar í flestum framhaldsskólum geta náð í einkunnir sinna nemenda með rafrænum hætti í gegnum INNU.
 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.