|
Kennsla hefst fimmtudaginn 27. maí og síðasti kennsludagur er fimmtudagurinn 24. júní. Til þess að ná tilskyldum fjölda kennslutíma verða nokkrir áfangar kenndir laugardaginn 12. júní. Þetta eru einkum tveggja eininga áfangar og náttúrufræðiáfangar.
Prófdagar verða 25., 28. og 29. júní.
Einkunnir eru afhentar og prófin sýnd miðvikudaginn 30. júní frá kl. 17:00 til 19:00.
Kennt er frá kl. 17:30 til 19:40 og 20:00 til 22:10.
Um 90 áfangar eru í boði.
Boðið upp á dreifnám í fjölmörgum áföngum.
Nemendur mega taka eins marga áfanga og þeir kjósa.
Engin mætingaskylda er í Sumarskólanum í FB.
Verð á einingu var 6.200 krónur (sama verð og undanfarin 4 ár).
Ekkert innritunargjald.
Hlutfallslegur afsláttur eru fyrir þá sem taka margar einingar (telur eftir 6 einingar).
Semja má um greiðslukjör.
Boðið upp á léttgreiðslur.
Nám við Sumarskólann í FB er matshæft í öðrum framhaldsskólum.
Úrvals réttindakennarar með mikla reynslu.
Nám í 0-áföngum fyrir nemendur í 10. bekk. Boðið er upp á dönsku og stærðfræði.
Kennsla í 0-áföngum hefst föstudaginn 4. júní.
Netinnritun frá og með 1. apríl á www.fb.is.
Almenn innritun fer fram í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti við Austurberg frá 20. maí á milli kl. 17:00 og 19:00 virka daga. Einnig er innritað laugardaginn 22. maí frá kl. 10:00 til 13:00.
Nánari upplýsingar í símum 570 5620, 570 5613 og 862 7610.
|