|
Engir náms- og starfsráðgjafar eru starfandi á vegum Sumarskólans í FB. Þó er hægt að hafa samband við námsráðgjafa Fjölbrautaskólans í Breiðholti áður en skóli hefst, en þeir hafa verið nemendum innan handar undanfarin sumur.
Þá eru nemendur úr öðrum skólum hvattir til þess að hafa samband við námsráðgjafa í sínum skólum til að fá ráðgjöf um nám sitt og aðra skylda hluti.
Hægt er að panta viðtalstíma hjá námsráðgjöfum Fjölbrautaskólans í Breiðholti með því að senda tölvupóst á þá og þeir hafa síðan samband við viðkomandi.
Netföng námsráðgjafa eru
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
(Elísabet) og
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
(Ólöf). Einnig er hægt að panta tíma hjá námsráðgjöfum á skrifstofu FB í síma 570 5600.
Upplýsingar um opna viðtalstíma er hægt að fá á skrifstofu sumarskólans og á auglýsingatöflu við skrifstofu náms- og starfsráðgjafa.
Náms- og starfsráðgjafar
- eru trúnaðarmenn nemenda og standa vörð um velferð þeirra.
- veita upplýsingar um nám og störf.
- veita ráðgjöf varðandi náms- og starfsval.
- veita ráðgjöf vegna námserfiðleika.
- fræða nemendur um árangursrík vinnubrögð í námi.
- hjálpa nemendum að skipuleggja nám sitt.
- veita nemendum stuðning og aðhald í námi skv. óskum.
- hjálpa nemendum að finna lausnir á persónulegum málum sem hindra þá í námi.
|