 Einkunnir nemenda í Sumarskólanum í FB voru afhentar miðvikudaginn 30. júní sl. Þeir sem ekki áttu kost á að ná í einkunnir sínar þá þurfa að bíða til 4. ágúst, en þá opnar skrifstofa Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hún er opin þá viku frá kl. 10:00 til 13:00. Frá og með 9. ágúst er skrifstofan síðan opin frá kl. 8:00 til 15:00. Gert er ráð fyrir að nemendur sjái sjálfir um að koma einkunnum sínum í þá skóla sem þeir stunda nám við. Eins bendum við á að áfangastjórar í flestum framhaldsskólum geta náð í einkunnir sinna nemenda með rafrænum hætti í gegnum INNU. Ef nemendur þurfa að koma einhverjum skilaboðum áleiðis til stjórnenda Sumarskólans í FB eða þurfa mjög nauðsynlega að fá upplýsingar um einkunnir sínar, þá eru þeir sömu beðnir um að hafa samband á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
. Stjórnendur Sumarskólans í FB þakka nemendum og starfsmönnum skólans fyrir ánægulegt samstarf í sumar með von um að allir viðkomandi eigi góða tíma það sem eftir er sumarsins. |
|
Einkunnir verða afhentar og próf sýnd miðvikudaginn 30. júní frá kl. 17:00 til 19:00. Þá mæta kennarar með próf nemenda og þá er hægt að spyrja út í prófin sjálf og einkunna gjöf fyrir áfangann. Ekki er hægt með góðu móti að sýna prófin síðar (t.d. næsta haust). Einkunnir eru gefnar í heilum tölum. Nái nemandi 5 eða hærra í ákveðnum áfanga hefur hann staðist áfangann. Einkunnin 4 og lægraþýðir að nemandinn hefur ekki staðist þær kröfur sem gerðar eru í áfanganum og telst því fallinn. Gert er ráð fyrir að nemendur sjái sjálfir um að koma einkunnum sínum í þá skóla sem þeir stunda nám við. Eins bendum við á að áfangastjórar í flestum framhaldsskólum geta náð í einkunnir sinna nemenda með rafrænum hætti í gegnum INNU. | |
|
Próftafla Sumarskólans í FB er nú komin á netið. Hana má finna hér fyrir ofan undir hnappnum Nám og kennsla. |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 11 |