|
Sumarskólinn í FB 2010 mun starfa með hefðbundnu sniði í sumar eins og mörg fyrri ár, en boðið verður upp á rúmlega 80 áfanga.
Kennsla hefst fimmtudaginn 27. maí og síðasti kennsludagur er fimmtudagurinn 24. júní. Jafnframt eru tveggja eininga áfangar og einstaka þriggja eininga áfangar kenndir laugardaginn 12. júní.
Prófdagar eru þrír; föstudagurinn 25. júní, mánudagurinn 28. júní og þriðjudagurinn 29. júní.
Prófsýning og einkunnaafhending fer svo fram miðvikudaginn 30. júní.
Boðið er upp á dreifnám í fjölmörgum áföngum.
Netinnritun hefst 1. apríl.
Nánari upplýsingar í símum 570 5613, 570 5620 og 862 7610.
|
|
|
Einkunnir fyrir Sumarskólann í FB 2009 voru afhentar þriðjudaginn 30. júní sl.
Nemendum sem ekki gátu sótt einkunnablöð sín þann dag er bent á að þeir geta sótt þau að loknum sumarleyfum, eða á skrifstofu Fjölbrautaskólans í Breiðholti frá og með 10. ágúst.
|
|
|