Fjölmennur hópur starfsfólks FB fór í lærdómsríka kynnisferð til Vínarborgar og Bratislava í haustfríinu. Alls heimsóttu starfmenn 13 mismunandi skóla, bæði bóknáms og verknámsskóla. Veðrið var eins og best verður á kosið í október eða um 23 gráður. Starfsmenn fóru einnig í skoðunarferðir bæði á eigin vegum og undir leiðsögn fararstjórans Gunnhildar Gunnarsdóttur þýskukennara FB.