Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er opinber framhaldsskóli sem starfar undir yfirstjórn mennta- og menningarmálaráðherra samkvæmt lögum nr. 92 frá 2008. Skólanefnd er skipuð af ráðherra. Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Í stjórnendateymi skólans eru 9 einstaklingar: skólameistari, aðstoðarskólameistari, sviðsstjóri bóknámssviðs, sviðsstjóri heilsusviðs, sviðsstjóri lista- og byggingasviðs, áfangastjóri námsstuðnings, áfangastjóri faglegrar þjónustu, rekstrarstjóri og fjármálastjóri. Skólaráð er skólameistara til samráðs og aðstoðar.


