Mætingareglur

19. Skólasóknarreglur

Mætingar

  • Nemendur skulu sækja allar kennslustundir í þeim áföngum sem þeir hafa í stundaskrá sinni
  • og koma stundvíslega til kennslu. Gerð er lágmarkskrafa um 80% heildarmætingu.
  • Nemendur verða að mæta í a.m.k. 80% kennslustunda. Í einstökum áföngum eru þó strangari
  • mætingareglur og eru þær tilgreindar í kennsluáætlunum. Hér er t.d. um að ræða ýmsa verklega áfanga og símatsáfanga.
  • Nemandi, sem ekki hefur mætt í kennslustund, getur ekki farið fram á að fá kennslu í því efni
  • sem búið er að fara yfir.
  • Engin leyfi eru gefin vegna læknisheimsókna og þess háttar fjarveru.
  • Nemandi sem er með yfir 95% mætingu fær A í skólasókn og eina einingu. Nemandi með
  • 90%–95% mætingu fær B í skólasókn. Nemandi með 85%– 89% mætingu fær C í skólasókn og
  • nemandi með 80%–84% mætingu fær D í skólasókn. Ef nemandi fer niður fyrir 80% mætingu (þegar búið er að draga frá veikindavottorð og leyfi) er hann fallinn á önninni og fær einkunnina E í skólasókn. Ef nemandi sem fellur á önn hyggst halda áfram námi þarf hann að gera grein fyrir fjarvistum sínum og sækja um skólavist að nýju.

Veikindi

Til að fá niðurfellda fjarvistaskráningu vegna veikinda þarf að skila inn læknisvottorðum eða staðfestingu frá foreldri eða forráðamanni sé nemandi undir 18 ára aldri. Vottorðin eru metin þannig að
fyrstu tveir dagarnir eru ekki dregnir frá. Skila þarf læknisvottorðum á skrifstofu skólans innan fimm
daga frá lokum veikinda. Ef nemandi er veikur í viku eða lengur á hann að láta skrifstofuna vita símleiðis, og skila síðan vottorði að loknum veikindum.14

Fjarvistir vegna annars en veikinda

Stjórnendur skólans geta heimilað að felldar séu niður fjarvistir að öllu leyti þegar nemendur hafa verið fjarverandi í sérstökum tilvikum.