Erlent samstarf

Alþjóðleg samskipti auka víðsýni nemenda, efla skilning þeirra á mikilvægi tungumálakunnáttu og
veita innsýn í líf og starf fólks í útlöndum.

Umsjónarmaður erlendrar samskipta hefur yfirsýn yfir samstarfsverkefni sem skólinn stendur að á hverjum tíma. Hann veitir kennurum góð ráð, miðlar af reynslu sinni og ræðir hugmyndir að verkefnum. Hann miðlar einnig til kennara skólans upplýsingum um verkefni sem hægt er að sækja um.
Kennarar hafa sjálfir frumkvæði að erlendum samskiptaverkefnum, sækja um styrki, annast framkvæmd og skila lokaskýrslu. Framkvæmd samskiptaverkefna er á höndum þeirra kennara sem styrk hafa hlotið.
Skólameistari skrifar undir umsóknir um erlend samskiptaverkefni að höfðu samráði við umsjónarmann erlendra samskipta. Samráð skal haft við skólameistara um fyrirkomulag nemenda- og kennaraskipta með tilliti til ferðatíma og forfallakennslu.

Nemendur geta í ákveðnum tilvikum fengið eina til tvær einingar fyrir þátttöku í erlendum samskiptaverkefnum.