Nemendur geta sagt sig úr áfanga í fyrstu kennsluviku á hverri önn, án þess að það hafi nokkrar afleiðingar. Þeir, sem skráðir eru í áfanga eftir að uppgefinn frestur til að segja sig úr er liðinn og mæta ekki í lokapróf, eiga ekki trygga skólavist á næstu önn. Nemandi, sem hverfur frá námi án vitneskju stjórnenda eða fær tvisvar sinnum E í skólasókn, hefur fyrirgert rétti sínum til áframhaldandi náms við dagskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

