Skólareglur

Umgengnisreglur

  1. Sýna ber háttvísi og prúðmennsku í skólanum og alls staðar þar sem komið er fram í nafni hans.
  2. Nemendur mæti stundvíslega í allar kennslustundir, virði verkstjórn kennarans og gæti þess að trufla ekki vinnufrið.
  3. Nemendur virði eigur skólans, gangi snyrtilega um og skilji ekki eftir rusl. Valdi nemandi skemmdum ber honum að skýra tafarlaust frá því.
  4. Neysla matar og drykkja (utan vatns í lokuðum brúsum) er óheimil í kennslustundum, á bókasafni og við tölvur skólans.
  5. Reykingar og önnur tóbaksneysla er óheimil í húsakynnum skólans og á lóð hans.
  6. Óheimilt er að neyta, meðhöndla eða vera undir áhrifum áfengis og/eða annarra vímuefna í skólanum, á samkomum eða í ferðalögum á vegum hans.
  7. Ekki má festa upp auglýsingar eða dreifa prentuðu efni í skólanum nema með sérstöku leyfi.
  8. Gæta skal þess að leggja bifreiðum þannig að ekki hindri umferð. Virða skal sérmerkt stæði fatlaðra og stæði ætluð starfsfólki.

Réttur kennara til að halda vinnufrið í kennslustundum

Kennarar skólans eru verkstjórar og skal ríkja vinnufriður í kennslustundum. Kennari getur gripið til viðeigandi ráðstafana til að tryggja vinnufrið, t.d. að færa nemendur í sundur, vísa nemendum út úr kennslustund og banna truflandi tæki (farsíma, tónhlöður, fartölvur og fl.).

Nemanda, sem veldur ítrekað truflun í kennslustund, skal vísað til aðstoðarskólameistara. Nemandi, sem fengið hefur áminningu vegna ónæðis eða óróa, getur átt á hættu að vera vísað úr viðkomandi áfanga, breyti hann ekki hegðun sinni.

Viðurlög vegna brota

Brjóti nemandi reglur skólans ber að veita honum munnlega áminningu, við alvarlegt brot veitir skóla-meistari skriflega áminningu og við ítrekað eða mjög gróft brot er nemanda vísað úr skóla.

Þegar ágreiningsmál eða brot á skólareglum koma upp skal aðstoðarskólameistari skrá atburðinn, ræða við málsaðila og upplýsa jafnframt forráðamenn ólögráða nemenda um málið. Aðstoðarskólameistari vísar eftir atvikum máli áfram til skólameistara. Skrifleg áminning skýrir frá tilefni, viðurlögum og andmælarétti nemanda.