Sjúkraliðabrú er námsleið til starfsréttinda sjúkraliða. Hún er ætluð fullorðnu fólki sem óskar að fá metna starfsreynslu og óformlegt nám á hjúkrunar‐ og umönnunarsviði til styttingar á námi á sjúkraliðabraut (SJ).
Skilyrði til innritunar í nám á sjúkraliðabrú eru að umsækjandi sé orðinn 23ára gamall, hafi 5 ára starfsreynslu við umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra og framvísi staðfestingu frá vinnuveitanda þar að lútandi. Auk þess þarf viðkomandi að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga og/eða annarra aðila, að lágmarki 230-260 stundir, með það að markmiði að auka kunnáttu og færni til starfa á hjúkrunarsviði og skal það nám metið til styttingar á námi samkvæmt námskrá sjúkraliðabrautar.
Umsækjendur, sem lokið hafa vissum áföngum í framhaldsskóla, geta fengið þá metna sem ígildi námskeiða. Þeir sem uppfylla þessi skilyrði skulu að lágmarki ljúka 83 eininga sérgreinanámi sjúkraliðabrautar. Skólameistari ber ábyrgð á slíku mati í samræmi við ákvæði í aðalnámskrá framhaldsskóla, almennum hluta.
Starfsþjálfun sem nemandi tekur sem hluta af námi á sjúkraliðabraut skal fara fram á nýjum vinnustað/vinnustöðum og á amk. 2 stöðum.
Um lokamarkmið, almenn ákvæði um nám og kennslu og áfangalýsingar sérnáms í skólanámi sem og vinnustaðanámi og starfsþjálfun vísast til aðalnámskrár framhaldsskóla: sjúkraliðabraut http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/sjukralidabraut.pdf.
Um útgáfu starfsleyfis vísast til reglugerðarnr. 897/2001 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða. Sá sem lokið hefur sjúkraliðanámi af brú með fullnægjandi árangri getur sótt um starfsleyfi sjúkraliða enda þótt viðkomandi hafi ekki lokið almennum greinum sjúkraliðabrautar samkvæmt aðalnámskrá.
Sá hinn sami kann hins vegar að þurfa að ljúka námi í almennum greinum sjúkraliðabrautar til að geta stundaðframhalds‐eða viðbótarnám að loknu námi samkvæmt sjúkraliðabrú.



