Náttúrufræðibraut

Góður grunnur í raungreinum
opnar margar dyr

Með því að nýta sér alla möguleika, sem fjölbrautakerfið býður upp á í stærðfræði og raungreinum, opnast dyr að mörgum áhugaverðum námsbrautum á háskólastigi. Nemendur hafa möguleika á að byggja góðan grunn fyrir framhaldsnám, sem krefst góðrar undirstöðu í stærðfræði og raungreinum þar sem skólinn býður upp á marga áhugaverða valáfanga í þessum greinum.

Náttúrufræðibraut er góður undirbúningur fyrir margar námsleiðir

Nám á náttúrufræðibraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með
stúdentsprófi. Námi á náttúrufræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda.
Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggjast á góðri undirstöðu í náttúruvísindum, s.s. heilbrigðisgreinum, verkfræði, tæknifræði og landbúnaðarfræðum.

Náttúrufræðibraut er sú braut í framhaldsskóla sem opnar leið inn í flestar deildir við háskóla. Nám á náttúrufræðibraut við FB hefur reynst nemendum góður grunnur undir háskólanám í ýmsum raungreinum. Má nefna að nemendur frá FB hafa hlotið hæstu einkunn sem gefin hefur verið í verkfræði og læknisfræði við Háskóla Íslands.

Þriggja ára náttúrufræðibraut

Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er hægt að ljúka stúdentsprófi á náttúrufræðibraut á 6 önnum. Námið hentar nemendum sem sýnt hafa góðan árangur í námi í grunnskóla. Útbúin er sérstök stundaskrá fyrir nemendur sem ætla að ljúka námi á náttúrufræðibraut á þremur árum.

Erlent samstarf nemenda í FB

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur á undanförnum árum tekið þátt í Comeníus verkefni á vegum Evrópusambandsins. Í tengslum við þetta verkefni hafa nemendur FB t.d. farið til Þýskalands, Englands, Ungverjalands og Belgíu og erlendir nemendur hafa heimsótt skólann. Skólinn hefur einnig tekið þátt í European Classes í Belgíu, einu eftirsóttasta framhaldsskólaverkefni í Evrópu.