Gagnlegt og uppbyggilegt nám með skemmtilegu fólki
Í áföngum á íþróttabraut fræðast nemendur um allt sem viðkemur þjálfun í íþróttum. Byrjað er á að fjalla um íþróttir barna og svo byggt ofan á það með íþróttasálfræði og þjálffræði. Í íþróttagreinum er tekin fyrir þjálfun barna í hinum ýmsu íþróttagreinum. Nemendur ljúka þjálfarastigi ÍSÍ (1a, b og c) í a.m.k. fjórum íþróttagreinum, allt eftir eigin áhuga. Auk þess klára nemendur almennan hluta 1 og 2 í þjálfarastiga ÍSÍ.
Nemendur á íþróttabraut mynda skemmtilegan kjarna í skólanum og kynnast vel.
Markmið íþróttafræðináms er að veita nemendum fræðilega og verklega undirstöðuþekkingu í kennslu og þjálfun íþrótta og hreyfináms fyrir börn og unglinga. Íþróttabrautin er 140 eininga nám til stúdentsprófs. Námið nýtist sem heppilegur undirbúningur fyrir háskólanám á sviði kennslu og íþróttafræða hér á landi sem erlendis.
Íþróttabrautin í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er með þeim stærri á landinu og hefur vaxið undanfarin ár. Það starfa 6 íþróttakennarar með ólíka reynslu við FB. Þar af leiðandi er breiddin og fjölbreytnin í kennslu og íþróttagreinum mjög mikil í skólanum. Við fáum einnig sérfræðinga til liðs við okkur þegar það á við.
Í FB er frábær aðstaða til íþróttaiðkunnar:
- Sundlaug – inni og úti
- Stór glæsilegur íþróttasalur
- Gervigrasvöllur í fullri stærð
- Ágætis lyftingatæki
- Fallegt umhverfi fyrir útivist
- Við nýtum einnig íþróttamannvirki í nágrenninu til að bæta aðstöðuna
Íþróttabrautin passar vel við aðrar brautir skólans og er auðvelt að taka með öðrum brautum skólans þannig að það er t.d. auðvelt að útskrifast af félagsfræðabraut með íþróttafræði og íþróttagreinar í kjörsviði.



