Innflytjendabraut

Innflytjendabraut er hugsuð sem tveggja ára stuðningur við nemendur af erlendum uppruna. Nemendur fara í svokallaða ISA áfanga sem er íslenska sem annað mál. Ennfremur fara erlendir nemendur í lífsleikni áfanga sem eru sérstaklega hannaðir fyrir erlenda nemendur. Nemendur sækja aðra áfanga skólans og fara inn á aðrar námsbrautir eftir áhuga og getu.

Nýnemar fara í sérstaka umsjónartíma einu sinni í viku með umsjónarkennara. Ennfremur er boðið upp á námsstuðning í námsveri og jafningjastuðning. Nemendur fara í stöðumatspróf í íslensku við upphaf náms við skólann. Athugið að ákveðnir áfangar á heilbrigðissviði bæði í dag og kvöldskóla krefjast undanfara í ÍSA.

Nemendur geta ennfremur tekið stöðupróf í móðurmáli sínu og fengið þær einingar sem þar fást metnar inn í skólann.

Námsgrein Haust Vor Haust Vor Haust
Íslenska sem annað mál 1036 2036 3036 4036 5036
Lífsleikni 1136 2136
Umsjón (aðeins fyrir nýnema) 1001
Mentoráfangi 1012 1012 1012 1012 1012
Samtals einingar 7 7 4 4 4