Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunn-námsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á.
Skólar geta skipulagt kennslu grunnnámsins eins og þeir telja best þjóna faglegum sjónarmiðum og skipulagi sínu. Þetta felur það í sér að skólar geta slegið saman tveimur eða fleiri skyldum áföngum ef það hentar betur vegna stundatöflugerðar eða kennslu. Hægt er með því móti að jafna einingafjölda milli áfanga, setja áfanga saman í stærri heild eða skipta í smærri einingar. Einnig má skipuleggja námið í þver-faglegum verkefnum, námskeiðum eða lotum sem standa yfir í ákveðinn tíma og lýkur með námsmati. Við allar slíkar útfærslur er mikilvægt að skólarnir gæti þess vel að öllum markmiðum grunnnámsins sé fullnægt og að þær valdi nemendum ekki erfiðleikum ef þeir vilja flytja sig á milli námsbrauta eða skóla síðar.
Lokamarkmið grunnnáms
Að loknu grunnnámi skal nemandi
- þekkja störf og starfsumhverfi innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar
- vita um námsleiðir að loknu grunnnámi í bygginga- og mannvirkjagreinum
- geta lesið og skilið einfaldar teikningar, verklýsingar og önnur verkgögn
- þekkja helstu efni sem unnið er með í bygginga- og mannvirkjaiðnaði
- þekkja og geta notað algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
- gera sér grein fyrir mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
- kunna skil á öryggisráðstöfunum á vinnustað og mikilvægi heilsuverndar
- þekkja helstu öryggisatriði varðandi umgengni við áhöld, tæki og efni
- gera sér grein fyrir mikilvægi umhverfisverndar í atvinnugreininni

