Félagsfræðabraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna þekkingu í bóklegu námi með áherslu á samfélagsgreinar. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum á sviði félagsvísinda. Nám á félagsfræðabraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með stúdentsprófi. Nemendum er bent á að velja sér kjörsviðsgreinar og frjálst val með áframhaldandi nám í huga.
Félagsfræðabraut veitir nemendum góðan undirbúning fyrir framhaldsnám í háskóla, sérstaklega í félagsvísindum og uppeldisgreinum.
Kjarni félagsfræðabrautar veitir nemendum almenna víðtæka þekkingu.
Kjörsviðsgreinar gefa nemendum tækifæri til að sérhæfa sig. Þar er ætlunin að nemendur dýpki þekkingu sína í því sem þeir hafa áhuga á.
Vakin er athygli á að viðskiptakjörsvið á félagsfræðabraut er gott veganesti fyrir framhaldsnám í viðskiptagreinum.
Íþróttakjörsvið á félagsfræðabraut hentar öllum þeim sem áhuga hafa á íþróttum eða hafa hug á að þjálfa börn og unglinga. Þar læra nemendur a.m.k. 4 íþróttagreinar og íþróttafræði. Þá fara nemendur einnig í starfsnám hjá íþróttafélagi að eigin vali og vinna þar við þjálfun.
Námið er með réttu vali á kjörsviðsgreinum góður undirbúningur undir nám í viðskiptafræði og lögfræði.



