Mat úr öðrum skólum

Mat úr öðrum skólum

Við skólann starfar matsnefnd sem metur nám úr öðrum skólum til eininga eftir frumgögnum viðkomandi skóla og er það fellt að námskerfi FB eftir því sem kostur er. Nám úr öðrum skólum er metið þannig að einkunn helst óbreytt eða námunduð að næstu heilu tölu. Matshæft telst nám að loknu grunnskólaprófi sem hefur skilgreind markmið og lýkur með námsmati og fullnægjandi árangri. Þar er um að ræða allt viðurkennt nám á framhaldsskólastigi, nám sem veitir starfsréttindi, viðurkennd námskeið og hliðstætt nám erlendis. Metnir áfangar færast inn á námsferil nemandans og koma fram á einkunnablaði í lok hverrar annar. Skólinn innheimtir gjald fyrir mat á námi úr öðrum skólum bæði í dagskóla og kvöldskóla.

Mat á einingum

Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er heimilt að meta til eininga umfangsmikil störf á vegum nemenda-félags, svo sem formennsku í félaginu og setu í stjórn þess, formennsku í félögum eða klúbbum sem starfa á vegum nemendafélags, ritstjórn skólablaðs, þátttöku í keppni á borð Gettu betur eða Morfís svo og annað framlag til skólastarfsins af líkum toga sem talið er vert sérstakrar viðurkenningar með námseiningum. Einingar sem gefnar eru samkvæmt þessari heimild má taka af frjálsu vali nemenda en bætast ella við tilskilinn einingafjölda við námslok.

Raunfærnimat

Raunfærnimat staðfestir og metur raunverulega færni í skilgreindum verkum eða námsefni án tillits til þess hvernig eða hvar færninni var náð. Raunfærnimatið er unnið af fagaðilum í samvinnu við kennara skólans. Nemendur sem hafa farið í raunfærnimat og vilja ljúka iðnnámi í FB gefst kostur á viðtali við náms- og starfsráðgjafa áður en nám hefst.

Stöðupróf

Tilgangur stöðuprófa er að gera viðkomandi kleift að sanna þekkingu sína í tiltekinni grein eða á tilteknu sviði. Með þessum hætti geta nemendur fengið viðurkennda þekkingu og reynslu sem þeir búa yfir og ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla og stytt þannig námstíma sinn til lokaprófs. Undanfarin ár hafa stöðupróf verið haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð í ágúst og desember ár hvert. Nemendum FB skal bent á að hafa samband við starfsfólk Menntaskólans við Hamrahlíð til að fá dagsetningar.