Efnis- og innritunargjöld eru ákveðin af skólameistara að höfðu samráði við skólanefnd. Innritunar-gjöld eru innheimt fyrir upphaf hverrar annar. Greiðsla þeirra er staðfesting á skólavist. Efnisgjöld fyrir ákveðna áfanga eru innheimt um miðbik hverrar annar. Greiði nemandi ekki efnisgjald fær hann ekki einkunnablað sitt afhent fyrr en hann getur framvísað greiðslukvittun.

