Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Brautir arrow Rafvirkjabraut
Rafvirkjabraut
Ertu vel tengdur?

Rafiðnadeild hefur verið starfrækt í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti síðan 1976 með grunnnámi rafiðna og framhaldsnámi fyrir rafvirkja í dagskóla og kvöldskóla.

Verksvið rafvirkja
Störf rafvirkja tengjast flestum sviðum nútíma lífs. Auk hefðbundinna nýlagna og viðhalds á eldri lögnum vinna rafvirkjar við margs konar sérhæfðar lagnir svo sem tölvulagnir, lagnir fyrir viðvörunarkerfi, dyrasíma og kallkerfi ásamt uppsetningu á loftnetskerfum og viðhaldi þeirra.

Nám í rafvirkjun
Grunnnám rafiðna er tveggja ára nám, 80 einingar, og er sameiginlegur
grunnur fyrir:
Kvikmyndastjórn, rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun og símsmíði.

Nám í rafvirkjun tekur eitt og hálft ár að lokinni grunndeild og er námið bæði verklegt og bóklegt. Ef námið er tekið allt í skóla þá er það 60 einingar að lokinni grunndeild og síðan 24 vikna starfsþjálfun. Ef neminn fer á samning hjá meistara í tvö ár er námið 35 einingar eftir grunndeild auk 48 vikna starfs-þjálfunar. Síðan fer neminn í sveinspróf.

Framhaldsmenntun
Af rafvirkjabraut er hægt að taka stúdentspróf og fara síðan í háskólanám. Einnig er hægt að fara í meistaraskóla og gerast sjálfstæður atvinnurekandi.

Stýringar
Stór þáttur í störfum rafvirkja er vinna við alls konar stýringar í iðnaði og
heimahúsum, þar sem unnið er meðal annars með iðntölvur og hússtjórnar-kerfi ásamt viðhaldi á tækjum og búnaði. Margir rafvirkjar vinna einnig við hönnun, ráðgjöf og sölumennsku á sviði raflagna- og rafbúnaðar.

Góðir atvinnumöguleikar
Rafvirkjun er háþróuð tæknigrein sem býður upp á mikla atvinnumöguleika, fjölbreytt starfssvið og er góður kostur fyrir þá sem ætla í framhaldsnám í tæknifræði og/eða verkfræði.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Námsleiðir á rafiðnaðarsviði

Eftirfarandi rafiðngreinar eru í boði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti:

Grunndeild rafiðna - nýja brautin - fjórar annir - gildir frá ágúst 2006

Rafvirkjabraut - gamla brautin sem gildir fyrir þá sem hófu nám fyrir 2006

Rafvirkjabraut - nýja brautin sem gildir fyrir þá sem hófu nám eftir 2006 

Kynntu þér


Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

innritunkvoldskoli.gif

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.