Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Brautir arrow Snyrtibraut
Snyrtibraut
Ein af frumþörfum mannsins
er að líða vel


Er snyrtifræði eitthvað fyrir þig?
Finnst þér gaman að vinna með fólki?
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er brautryðjandi í kennslu í snyrtifræði eftir að hún varð löggilt iðngrein 1985.

Nám í snyrtifræði
Nám í snyrtifræði er bæði skemmtilegt og skapandi og skiptist í verklegt nám, fagbóklegar og almennar námsgreinar. Almennt bóklegt nám tekur 2 annir og verklegt nám í skóla er 4 annir. Að loknu námi í skóla tekur við 40 vikna starfsþjálfun. Námsbrautin er því skilgreind sem þriggja ára nám, auk starfsþjálfunarinnar. Námi í snyrtifræði lýkur með sveinsprófi og fær þá viðkomandi starfsheitið snyrtifræðingur. Nemandi þarf að vera orðinn 18 ára þegar hann byrjar nám í verklegri snyrtifræði.

Framhaldsnám
Til að öðlast meistararéttindi í greininni er hægt að fara í meistaraskóla og gerast sjálfstæður atvinnurekandi. Meistaranámið er 17 eininga nám.
Af snyrtibraut er hægt að taka stúdentspróf.

Mannleg samskipti
Kennsla í snyrtifræði miðast við að veita almenna, faglega undirstöðumennt-un í greininni. Leitast er við að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð nemenda og auka hæfileika þeirra og getu til samvinnu við aðra. Nemendur auka færni sína til að standast kröfur iðngreinarinnar um nákvæmni, áreiðanleika og fagleg
vinnubrögð. Snyrtifræðingar vinna í mikilli nálægð við viðskiptavini sína og því er mikilvægt að þjálfa samskiptafærni nemenda og getu þeirra til að skilja þarfir viðskiptavina. Lögð er áhersla á að rækta jákvætt viðhorf nemenda til gæða þjónustu.

Góðir atvinnumöguleikar
Starf snyrtifræðings er fjölbreytt og gefandi og býður upp á margs konar
atvinnutækifæri að námi loknu: Að vinna á snyrtistofu, á heilsuræktarstöðvum, að vera ráðgefandi í verslunum og heildverslunum. Námið er byggt upp samkvæmt alþjóðlegum kröfum í snyrtifræði.
 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Kynntu þér


Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

innritunkvoldskoli.gif

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.