|
Gagnlegt og uppbyggilegt
nám með skemmtilegu fólki
Í áföngum á íþróttabraut fræðast nemendur um allt sem viðkemur þjálfun
í íþróttum. Byrjað er á að fjalla um íþróttir barna og svo byggt ofan á
það með íþróttasálfræði og þjálffræði. Í íþróttagreinum er tekin fyrir
þjálfun barna í hinum ýmsu íþróttagreinum. Nemendur ljúka þjálfarastigi
ÍSÍ (1a, b og c) í a.m.k. fjórum íþróttagreinum, allt eftir eigin
áhuga. Auk þess klára nemendur almennan hluta 1 og 2 í þjálfarastiga
ÍSÍ.
Nemendur á íþróttabraut mynda ákveðinn skemmtilegan kjarna í skólanum og kynnast vel.
Markmið íþróttafræðináms er að veita nemendum fræðilega og verklega
undirstöðuþekkingu í kennslu og þjálfun íþrótta og hreyfináms fyrir
börn og unglinga. Námið er skilgreint sem 73 eininga sjálfstætt
starfsnám þar sem starfsvettvangur er þjálfun barna og unglinga hjá
félagasamtökum og skólum. Námið nýtist einnig sem heppilegur
undirbúningur fyrir háskólanám á sviði íþróttafræða hér á landi sem
erlendis.
Íþróttabrautin í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er með þeim stærri á
landinu og er í örum vexti. Það starfa 6 íþróttakennarar með ólíka
reynslu við FB. Þar af leiðandi er breiddin og fjölbreytnin í kennslu
og íþróttagreinum mjög mikil í skólanum.
Í FB er frábær aðstaða til íþróttaiðkunnar:
• Sundlaug – inni og úti
• Stór glæsilegur íþróttasalur
• Gervigrasvöllur í fullri stærð
• Ný lyftingatæki
• Fallegt umhverfi fyrir útivist
Íþróttabrautin passar vel við aðrar brautir skólans.
Íþróttabrautina er hægt að taka með öðrum brautum skólans þannig að það
er t.d. mjög auðvelt að útskrifast af félagsfræðabraut með íþróttafræði
og íþrótta-greinar í kjörsviði.
Nemendur á íþróttabraut geta lokið stúdentsprófi með tvennum hætti:
1. Með því að nota námið sem kjörsvið eða frjálst val á bóknámsbrautum.
2. Lokið viðbótarnámi til stúdentsprófs.
|