| Viðskipta- og hagfræðibraut |
|
Í nútíma þjóðfélagi er öllum nauðsyn að hafa haldgóða þekkingu á bókhaldi, viðskiptum og hagfræði til að geta með góðu móti fylgst með og tekið þátt í þjóðmálaumræðu. Nám á viðskipta- og hagfræðibraut er réttur vettvangur til að öðlast slíka þekkingu. Nám á viðskipta- og hagfræðibraut veitir nemendum innsýn í efni sem snertir daglegt líf allra einstaklinga. Nemendur fá góða undirstöðu í almennum greinum, góða undirstöðu í viðskipta- og hagfræðigreinum og öðlast þannig góða undirbúningsmenntun fyrir framhaldsnám í viðskipta- og hagfræðigreinum og öðrum félagsgreinum. Í kjarna er lögð áhersla á góða almenna menntun í almennum greinum auk kynningar á bókhalds-, viðskipta- og hagfræðigreinum. Á kjörsviði er lögð áhersla á að gefa nemendum kost á að velja sér greinar eftir sínu áhugasviði og dýpka þannig þekkingu sína. Sem kjörsviðsgreinar geta nemendur valið bókhaldsgreinar, viðskiptagreinar og hagfræðigreinar auk almennra greina. Nemendur sem stefna að frekara námi í hagfræði eru sérstaklega hvattir til að taka fleiri einingar í stærðfræði en lágmarkseiningafjöldi segir til um. |