| Upplýsinga- og tæknibraut |
|
Upplýsinga- og tæknibraut Upplýsinga- og tæknibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti er kjörin námsleið fyrir alla þá sem áhuga hafa á fjölbreyttum möguleikum upplýsingatækninnar. Nemendur kynnast margháttaðri tölvuvinnslu, s.s. vefsíðugerð, gagnagrunnsvinnslu, myndvinnslu, margmiðlun, tölvustuddri hönnun og uppsetningu og rekstri netkerfa. Brautinni er ætlað að veita nemendum fræðilega og verklega innsýn í tæknifræði, verkfræði og tölvunarfræðigreinar. Brautinni er þannig ætlað að mæta náms- þörfum nemenda sem hafa sérstakan áhuga á tækni- og verkfræðilegum úrlausnum verkefna en hyggja ekki á iðnnám í tæknigrein. Nám á upplýsinga- og tæknibraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með stúdentsprófi. Hugbúnaðarfræði Nemendur læra grunnþætti forritunar í PHP og verklag. Rauntækni Nemendur kynnast ýmsum mæliaðferðum og vali á tækjum, fjallað er um fram- leiðslutækni, framleiðsluferli og lausn vandamála á því sviði. Í rauntækni ljúka nemendur CISCO-kerfinu í tölvuumsjón. Tölvustudd hönnun Í áföngunum er unnið með grafík í tvívídd og grunnatriði í þrívídd. Nemendur læra notkun algengs teikni- og hönnunarforrits og vinna hönnunarverkefni í tölvu. Upplýsinga- og samskiptafræði Í upplýsinga- og samskiptafræði eru grunnhugtök samskiptafræðinnar kynnt. Farið er í stærðir og athygli nemenda vakin á mikilvægi þessara þátta með tilliti til gagna á vefnum. Nemendur læra undirstöðuatriði vefsíðugerðar og vinna vefi í sérhæfðum hugbúnaði til vefsíðugerðar. Nemendur þjálfast í notkun hljóð- og myndvinnsluhugbúnaðar og læra helstu hugtök stafrænnar hljóð- og myndvinnslu. Vefmiðlun Í áfanganum er kennd hönnun vefsíðu samkvæmt XHTML staðlinum. Nemendur fá þjálfun í notkun ýmissa hjálparforrita við vefsíðugerð, s.s. Dreamweaver. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í stafrænni myndvinnslu og lögð er áhersla á að þeir læri að meðhöndla myndir fyrir vef. Nemendur fá þjálfun í notkun Javascript og smíða gagnvirka vefi. Verklagsfræði Nemendur kynnast áætlanagerð og setja upp áætlanir í Excel. Kynning á Access gagnagrunni. Áhersla er lögð á að nemendur víkki út sjóndeildarhring sinn og temji sér að hugsa út frá öðrum og nýjum sjónarhornum. |