Skip to content
Þú ert hér: Forsíða arrow Brautir arrow Málabraut
Málabraut

Blindur er bóklaus maður

Málabraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er ætlað að veita
nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á erlend tungumál, s.s. ensku, dönsku, spænsku og þýsku. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum þar sem gerð er krafa um góða tungumálamenntun. Nám á málabraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með stúdentsprófi.

Námið skiptist í kjarna, kjörsvið og frjálst val. Kjarninn er sameiginlegur öllum stúdentsprófsbrautunum og inniheldur 98 einingar. Kjörsviðið er 30 einingar en þar eiga nemendur að velja sér minnst 3 námsgreinar til að dýpka þekkingu sína. Algengast er að nemend-ur á málabraut velji sér kjörsviðsáfanga í íslensku, ensku, dönsku, spænsku, þýsku og latínu.

Stúdentspróf af málabraut er heppilegur undirbúningur fyrir háskólanám í hugvísindum, einkum íslensku, bókmenntafræði,
erlendum tungumálum, sagnfræði og heimspeki. Margir nemendur af málabraut hafa farið í kennaranám eða lagt fyrir sig einhvers konar ferðamálafræði til þess að starfa á ferðaskrifstofum eða í móttökum hótela eða orðið leiðsögumenn, flugfreyjur og flugþjónar.

 
Austurberg 5 | 111 Reykjavík | Sími 570 5600 | Símbréf 567 0389 | Tölvupóstur: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Kynntu þér


Upplýsingaskjár

Skrifstofa

Vefpóstur

Inna : Nemendur

Dreifnámsvefur

GRÁR KASSI

Sérðu GRÁAN kassa og ekki efsta hluta síðunnar. Smelltu þá hér.